Fróðleikur

Aðgengi ofar öllu

Þegar aðgengi vefsvæða skiptir máli er eplica eina alvöru svarið

Eftirfarandi atriði hjálpa vefnotendum að finna og nota upplýsingar á vefnum þínum.

Aðgengi blindra og sjónskertra

Mikið er lagt upp úr því að vefir sem Hugsmiðjan setur saman séu aðgengilegir öllum. Það þýðir að leggja þarf rækt við þá sem hafa einhverjar tæknilegar sérþarfir. Sem dæmi má nefna að vefsíðum er raðað sérstaklega saman fyrir blinda sem nota hljóð­gervla. Þannig komast þeir nú beint í meginmál vefsíðunnar en þurfa ekki að fara í gegnum langt veftré fyrst. Fyrir viðskiptavini sem vilja geta boðið sjónskertum upp á jafnt aðgengi er hægt að setja upp valmöguleika á stækkanlegu letri eins og fjallað er um hér að neðan.

Notast er við töflulaust HTML ásamt CSS stílsniðum. Allar upplýsingar um útlit og framsetningu er að finna í CSS skjölum en HTML kóði vefsvæðisins nýtist, óbreyttur, jafnvel þó að útliti sé breytt.

Ef þú vilt skoða þessa síðu með ólíkum css skjölum, veldu þá eitt af eftirfarandi:

Læsilegar vefslóðir

Læsilegar vefslóðir, þær eru mikilvægur þáttur í því að notendur geti rakið sig fram um vefinn. Sem dæmi má nefna að www.eplica.is/frettir er ólíkt þægilegri aflestrar en www.eplica.is/template2.aspx?pageid=261. Það er algengt að þetta atriði sé vanmetinn hluti af aðgengismálum vefsvæða.

Meðal kosta við læsilegar vefslóðir má nefna:

  • Slóðirnar eru lýsandi fyrir innihald síðunnar
  • Þær eru oftast stuttar og meðfærilegar
  • Þær eru líklegar til að lifa lengi og skapa heimsóknir mörg ár fram í tímann

Eldri slóðir halda sér

Eldri slóðir geta haldið sér eftir uppsetningu í kerfinu, við endurnýjun vefsvæða gleymist oft að fjöldi vefnotenda hefur bókamerkt efni á vefsvæðunum sem þeir finna svo ekki lengur þegar vefirnir eru uppfærðir. Til að koma í veg fyrir þessa röskun á aðgengi vefnotenda skráir eplica slóðina af gamla vefnum um leið og nýr vefur er settur upp í kerfinu. Þannig hafa dæmin sýnt að vefnotendur á efnismiklum vefsvæðum biðja um slóðir á vefsvæðum sem sett voru upp í upphafi internet-byltingarinnar um og fyrir 1996. Þessum notendum er það ómetanlegt að geta enn fundið það efni sem bókamerki þeirra vísa til.

Fyrir þessa síðu hefur verið skráð eldri vefslóð "/fleh.asppage=1209content=2". Þegar notandi velur tenginguna eða notar gamalt bókamerki endar hann sjálfkrafa á réttri síðu (þessari) en vafri hans fær jafnframt send HTTP skilaboð (301) um að efnið hafi verið flutt varanlega.

Það er vert að hafa það í huga að vefslóðir eru eins og símanúmer, maður vill forðast það í lengstu lög að skipta um símanúmer að óþörfu.

Hlekkjasafn

Hlekkir, með eplica kemur miðlægt hlekkjasafn. Í gegnum það má gefa eina skipun og þá myndast hlekkur alls staðar um vefsvæðið þar sem ákveðið orð eða orðmynd kemur fyrir. Þannig getur vefstjóri ákveðið að alls staðar þar sem orðið vefumsjónarkerfi eða einhver mynd af því, skuli koma hlekkur á vefsvæði eplica. Þannig má breyta efnismiklum vefjum þar sem efnið hefur ekki verið tengt mikið saman og á augabragði hjálpa vefnotendum að finna heilmikið efni innan vefsvæðisins og utan. Ef breyta þarf vefslóðinni gerir vefstjórinn það á einum stað fyrir allar tengingarnar.

Íðorðaskrá

Íðorðaskráin, er frábær leið til að hjálpa vefnotendum að skilja efni sem inniheldur mikið af fagorðum. Íðorðaskráin er miðstýrð og getur vefstjóri ákveðið að alls staðar þar sem ákveðið orð kemur fyrir í texta, skuli vefnotendur geta fengið orðskýringu. Þannig kemur brotin lína undir orðið eða orðmynd og ef notandinn fer yfir það með músarbendlinum fær hann upp á skjáinn stutta textaskýringu. Til dæmis gæti orðið ?vextir? fengið eftirfarandi skýringu: ?gjald sem lánardrottnar innheimta og reiknast sem hlutfall lánsfjárhæðar á ársgrundvelli.?

Brauðmolaslóð

Brauðmolaslóð, þetta skemmtilega orð vísar til sögunnar um Hans og Grétu þar sem Hans sleppti reglulega brauðmolum á götu sína til að rata örugglega heim. Það sama á við um þessa brauðmolaslóð. Hún er, alveg eins og læsilegu vefslóðirnar, enn eitt tækið til að hjálpa vefnotendum að rata um síðuna. Eftir því sem notandinn kafar dýpra í vefsvæðið lengist vefslóðin þannig að hjá notanda sem kominn er á vefsíðuna eldri fréttir gæti brauðmolaslóðin litið svona út:

Um okkur >> Vörur og þjónusta >> Fatnaður >> Buxur

Þannig að hann sér hvaða leið hann hefur farið og getur bakkað beint á síðuna um Fréttir og fréttatilkynningar með því að velja hana af brauðmolaslóðinni.

Stækkanlegt letur

Stækkanlegt letur, það hefur verið leiðinlegur ókostur á hönnun margra vefsíðna að þeir sem eitthvað eru farnir að missa sjón geta vart lesið efni síðunnar. Nú bjóðum við nýja þjónustu sem er í því fólgin að notendur geta kosið að stækka letur til að auðvelda sér lesturinn. Skemmtilega útfærslu má sjá á vefsíðu Blindrafélagsins, www.blind.is. Stafastærðin heldur sér svo næst þegar notandinn kemur inn á vefsvæðið þannig að notandinn þarf aðeins að velja leturstærð einu sinni.

Eins og margir vita þá styðja vafrar misvel við þessa tækni. En með verklagi Hugsmiðjunnar ættu 99% notenda að geta breytt leturstærðum og notið efnisins betur.

Þessa þjónustu þarf að hafa sérstaklega í huga við hönnun síðunnar þannig að útlit vefsvæðisins haldist sem best þó að leturstærðum sé breytt á því.

Tölvulesið vefefni

Fáanleg er viðbótareining sem gerir kaupendum eplica kleift að tengjast talgervilsþjónustu hugbúnaðarfyrirtækisins HEX, www.hex.is. Þá geta notendur hringt í ákveðið númer og talgervill les þá efni vefsíðunnar upp. Þetta er sérstaklega góður kostur þar sem efni er tímanæmt, eins og á fréttasíðum eða upplýsingasíðum um komutíma og brottfarir farartækja.

Það er einnig vert að minnast á að þessa þjónustu má tengja við SMS tilkynningar þannig notendur fái sent SMS með efnisábendingu og hringi til baka og hlusti á lengri texta.

Góð skráning lýsigagna

Hægt er að skrá lýsigögn (e. Meta data) fyrir allt efni á vefsvæðinu; vefinn sjálfan, einstaka vefflokka, einstakar greinar eða myndir sem notaðar eru á vefsvæðinu. Þetta auðveldar aðgengi að efninu á fleiri en einn hátt.

Í fyrsta lagi auðvelda vel skráð lýsigögn leitarvélum að finna efnið á síðunni en auk þess fá greinar með vel skráðum lýsigögnum hærra vægi þegar leitarvélin raðar saman leitarniðurstöðum. Þannig verður efni viðkomandi vefsíðu hærra á listanum en ella.

Í öðru lagi hjálpar vel gerð skráning þeim sem hafa tæknilegar sérþarfir að notfæra sér vefinn: Ef vafrað er um vefinn með hljóðvafra heyrir notandinn aðeins ?Mynd" þegar kemur að mynd, en ef hann kemur að mynd sem búið er að skrá fyllilega heyrir hann: ?Mynd, Félagsmálaráðherra handsalar samning við formann Öryrkjabandalagsins um bætt kjör öryrkja?. Það er augljóst að slík skráning breytir upplifun viðkomandi af vefsíðunni.

Vefun fyrir alla vafra

Vefsvæði sem Hugsmiðjan vinnur eru ofin þannig að innihald þeirra er aðgengilegt í öllum vöfrum - bæði eldri útgáfum algengra vafra, sem og sérhæfðum vöfrum s.s. lesvöfrum sem blindir nota, lófatölvuvöfrum, o.s.frv.

Vefforritunin byggir á nýjustu veftækni (CSS, engar óþarfar töflur o.s.frv.) sem gefur mikinn sveigjanleika í útlitsframsetningu og auðveldar til muna allar uppfærslur á útliti vefsvæðisins.

Síðurnar fylgja til hlítar þeim línum sem grafískur hönnuður síðunnar leggur í öllum algengustu, nýjustu vöfrunum, en notendur eldri og takmarkaðri vafra fá einfaldara og hrárra útlit sem þó tryggir fullkomið og skýrt aðgengi að öllum hlutum vefsvæðisins.

Skynsamleg röðun efnis innan hverrar síðu tryggir jafnframt að síðurnar eru þjálar í notkun fyrir blinda og fatlaða notendur vefsins.

Prentvæn framsetning

Sérstakt prentstílsnið er útbúið fyrir allar vefsíður. Þannig geta vefnotendur prentað efni beint af vefnum án þess að velja sérstaklega prentvæna útgáfu af síðunni. Þetta auðveldar notendum að prenta og sparar óþarfa aukakostnað við að útbúa prentvæna útgáfu af öllum síðum.

Í prentstílsniðinu er efni síðunnar raðað upp á annan hátt. Valmynd og annað aukaefni á síðunni er fellt í burt og meginmál síðunnar skilið eftir.

prenta

Efnisyfirlit

Efnishöfundar geta kosið að skipta efni sínu upp í kafla og þannig auðveldað aflestur þess á skjá. Sömuleiðis er hægt að setja inn bókamerki við hverja millifyrirsögn (og raunar á fleiri stöðum) og birta efnisyfirlit fyrir greinina efst. Þannig getur lesandinn hoppað beint á þann stað í greininni sem honum hentar.

 

 

 

Leita á vefnum


 




 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.