Fróðleikur
Mikilvægar spurningar
Spurningar sem þú skalt spyrja áður en þú velur nýtt vefumsjónarkerfi
- Hvernig er kennslu og þjálfun háttað
Er íslenskt kennsluefni innifalið í kaupunum - Styður kerfið aðskilnað efnis, útlits, framsetningar og virkni
- Er hægt að bregðast við sérþörfum notenda vefsvæðisins
(T.d. fatlaðir, blindir og fólk með tæknilegar sérþarfir). - Hversu auðvelt er að læra á kerfið
Get ég kennt starfsmönnum að nota kerfið á innan við 10 mínútum - Gerir kerfið kröfur um breytingar í rekstrarumhverfi fyrirtækisins
- Gerir kerfið kröfur um sérstakan búnað hjá notendum vefsvæðisins
- Er hægt að tengja kerfið við önnur upplýsingakerfi með einföldum hætti
- Hvaða grunneiningar eru innifaldar í kerfinu við kaup
Hvaða viðbótareiningar eru fáanlegar og hvað kosta þær - Er réttindastýring hluti af kerfinu
- Hvernig er að breyta og bæta við veftré
Í skjalinu hér að neðan má finna fleiri spurningar sem spyrja þarf ásamt nánari útlistun á hverri fyrir sig. Spurningalisti fyrir kaup á vefumsjónarkerfi

