Þjónusta

Þjónusta

Við hjá Hugsmiðjunni getum tekið að okkur allt sem viðkemur gerð vefsvæða, sérlausna fyrir innri net eða samþættingu upplýsingakerfa. Í samvinnu við samstarfsfyrirtæki okkar bjóðum við allt frá verkefnastjórn til sérsmíði og frá útlitshönnun til rýnihópsprófana eða framkvæmdar viðhorfskannana. Hvort sem þú vilt vinna hlutina sem mest sjálfur, vinna með mörgum fyrirtækjum með afmarkað sérsvið eða fá alla þjónustu á einum stað er Hugsmiðjan réttur kostur fyrir þig.

Hugsmiðjan leitast við að tryggja að notkun kerfisins gangi sem þægilegast fyrir sig. Einföld og þægileg efnisumsýsla er lykilatriði þegar á að halda úti góðum vef, svo allir notendur geti verið sjálfbjarga í verkefnum sínum. Eplica er byggð með það fyrir augum að notendur geti leyst af hendi sem flest verkefni án utanaðkomandi hjálpar. Sérstök áhersla var lögð á hönnun notandaviðmótsins við hönnun kerfisins auk þess sem mikið hefur verið lagt upp úr því að gera kennsluefni sem aðgengilegast.



 

 




 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.