Mikill sveigjanleiki
Í grunnútgáfu Eplica er innifalið allt það sem nauðsynlegt er til að byggja upp metnaðarfullan vef t.a.m. umsýsla greina, frétta skjala og myndefnis. Að auki eru til fjölmargar viðbótareiningar sem gera viðskiptavinum kleift að auka þjónustu á vefsvæðum sínum á einfaldan hátt t.a.m. Vefformasmiður, Atburðadagatal, Póstlisti og fréttabréf ofl. Opin hönnun Eplica gerir það kleift að tengjast má hvers kyns gagnaveitum ásamt því að forrita eigin lausnir, að auki tökum við að okkur þróun sérlausna hvort sem er frá grunni eða sem viðbót við núverandi einingar.
Ólíkar þarfir mismunandi viðskiptavina þýðir að vefumsjónarkerfið þarf að geta aðlagast mismunandi aðstæðum. Raða má saman mismunandi virkni einingum sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Þannig komum við til móts við rekstrarþarfir hvers og eins gerir okkur kleift að byggja upp það vefsvæði sem lagt er upp með. Til að einfalda val viðskiptavina skiptist Eplica niður í fjóra grunnpakka.
* Eplica Express
* Eplica Professional
* Eplica Corporate
* Eplica Enterprise
Hafðu samband við ráðgjafa Hugsmiðjunnar til að aðstoða þig við val á kerfi sem fellur að þínum þörfum
