Leita á vefnum




Þægilegt í notkun

Þægilegt í notkun

Dagleg umsýsla í Eplica vefumsjónarkerfinu er sérlega þægileg. Auðvelt er fyrir vefstjóra og aðra notendur að setja inn og viðhalda texta, myndum og öðrum gögnum.

Eplica vefumsjónarkerfið er sérlega þjált í notkun og auðvelt er að setja inn nýtt efni og breyta því sem fyrir er. Skráðir notendur vinna efni beint á viðkomandi vefsíðum og rétt útlit sést því um leið og unnið er. Eplica vefumsjónarkerfið og vinnubrögð Hugsmiðjunnar tryggja gott aðgengi og að Eplica vefir koma vel út í mismunandi umhverfi og leitarvélum.

Vefritill Eplica gerir alla vinnslu efnis einfalda og aðgengilega. Vefritill Eplica er sveigjanlegur og aðlagar sig eftir aðgerðum notandans, þannig birtir hann ritvinnsluaðgerðir á textasvæðum en myndvinnsluaðgerðir ef mynd er valin. Vefritillinn styður helstu aðgerðir sem notaðar eru í ritvinnslu og virkni hans er þar af leiðandi eitthvað sem flestir notendur Eplica ættu að þekkja.

Helstu kostir vefritils

  • Afritun efnis úr ritvinnsluforritum eins og Word, Open Office og Excel
  • Afritun efnis af eldri vefsíðum ásamt því að viðhalda framsetningu eldra efnis
  • Helstu aðgerðir ritvinnslu svo sem framsetning texta, töflur, staðsetning mynda og hlekkir.
  • Notendur vinna í endanlegu útliti og framsetningu vefsins
  • Vefritillinn gerir greinarmun á hvort verið er að vinna með texta eða myndir
  • Staðsetning mynda og skjala er í höndum notandans
  • Skráningar mynda og skjala eru aðgengilegar í gegnum vefritilinn

Hafðu samband

(Til að fyrirbyggja ruslpóst)
(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica