eplica Vefumsjónarkerfi
eplica vefumsjónarkerfið
eplica er eitt vinsælasta og fjölhæfasta vefumsjónarkerfið á Íslandi. Til að mæta breytilegum þörfum viðskiptavina er eplica til í þremur mismunandi útgáfum:
![]() |
Small Business Edition |
![]() |
Corporate Edition |
![]() |
Enterprise Edition Fyrir kröfuhörðustu fyrirtæki og stofnanir sem vilja veita framúrskarandi þjónustu á Netinu og nota til þess ótakmarkaðan fjölda vefsvæða. |
Ný útgáfa af eplica, eplica 1.4, er tilbúinn. Lestu um hvað hefur breyst í nýju úgáfunni.
Hægt er að bæta einstökum kerfisviðbótum við hverja útgáfu eftir þörfum. Kerfisviðbætur eru til í miklu úrvali og eru flestar hannaðar í samstarfi við núverandi notendur.
Þegar um þekkt viðfangsefni er að ræða bjóðum við eplica pakkalausnir sem innihalda eplica kerfi, kerfisviðbætur, vefkóða og grunnuppsetningu vefsvæðis. Þessir pakkar byggja á lausnum sem við höfum þegar sett upp fyrir fjölda viðskiptavina og er ætlað að stytta verktíma til muna.
eplica hentar vel fyrir allar gerðir vefsvæða:
- Almennir upplýsingavefir (Internet)
- Rafræn viðskipti (eCommerce)
- Þjónustuvefir (Extranet)
- Innrivefir (Intranet)
- Ríki og sveitafélög (eGoverment)
- o.fl.
Rétt samsetning - Rétt útkoma
Ráðgjafar eplica geta án fyrirhafnar metið þarfir og mælt með bestu eplica lausninni fyrir hvert verk. Nánari upplýsingar um mun á eplica útgáfunum er að finna í samanburðartöflu sem getur aðstoðað þig við að finna þá eplica útgáfu sem hentar þér. Auk þess bjóðum við margvíslegar kerfisviðbætur fyrir eplica vefumsjónarkerfið en lista yfir þær er að finna hér.
Kynntu þér eplica nánar
Það væri okkur sönn ánægja að fá að kynna þér eplica vefumsjónarkerfið nánar. Hér á vefnum er hægt að panta kynningu en þú getur einnig haft samband við okkur með öðru móti og mælt þér mót við okkur.




