Skilriki.is - vefur um rafræn auðkenni
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, tóku í gær í notkun fyrsta rafræna skilríkið hér á landi en rafræn skilríki munu nýtast bæði í viðskiptum og í samskiptum við hið opinbera og ekki síður til að bæta öryggi samskipta á netinu. Athöfnin fór fram á ráðstefnunni Nýtum tímann – notum tæknina í Salnum í Kópavogi. Á ráðstefnunni var opnaður nýr upplýsingavefur um rafræn skilríki, skilriki.is, á vegum fjármálaráðuneytis. Hugsmiðjan hannaði vefinn og setti hann upp í Eplica-kerfinu.
Lesa meira
Forsætisráðherra opnar rafrænu þjónustuveituna Ísland.is
Forsætisráðherra, Geir H. Haarde opnaði í gær þjónustuveituna Ísland.is (www.island.is). Hér er um að ræða samstarfsverkefni ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga og er eitt mikilvægasta verkefnið í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið fyrir árin 2004 – 2007, Auðlindir í allra þágu. Forsætisráðuneyti fer fyrir verkefninu. Hugsmiðjan hannaði vefinn og setti hann upp í Eplica-kerfinu.
Lesa meira
- Bréf til viðskipavina
- Iðnnemasamband Íslands með nýja síðu
- Stillingar.is á alla vefi Stjórnarráðs Íslands
- Skemmtileg virkni á heimskorti
- Útlitshönnun Hugsmiðjunnar fyrir Icelandair tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna
- Latibær safnar verðlaunum og opnar nýjan vef
- Náttúrufræðistofnun opnar vef í Eplica
- TR :: 70 ára afmæli og nýr vefur
- Glitnir velur Hugsmiðjuna
- Nýr vefur Kjararáðs





